| Amerískar pönnukökur (ca. 10 stk) |
Þessar þarf að búa til u.þ.b. 1 klst. áður en á að borða þær, því m.a. þarf að geyma deigið í hálftíma í ísskáp. |
|
1 1/3 b hveiti 1 1/2 tsk lyftiduft 1/4 tsk matarsódi 2 egg 1 1/4 b mjólk 1/3 b sykur 30 g mjúkt smjör |
|
Sigtið hveitið, lyftiduftið og matarsódann í skál. Setjið eggið ásamt mjólkinni
og sykrinum í skál og þeytið með gaffli þar til vel blandað. Hellið
mjólkurblöndunni útí hveitiblönduna og hrærið í á meðan. Hrærið þar til deigið
er tilbúið. Setjið plast yfir skálina og geymið í ísskáp í 30 mín. Hitið pönnuna og hafið hana stillta á miðlungs hita. Notið 1/4 bolla málið til að skammta deigið á pönnuna. |