| Appelsínukaka (f. 6-8) |
125 g mjúkt smjör 1/3 bolli mjólk 2 egg 1 msk fínt rifinn appelsínubörkur 2 msk appelsínusafi 2 b sykur 1 1/2 b hveiti 3 tsk lyftiduft 1 1/2 msk flórsykur 1/2 b appelsínusafi, aukalega 1 miðlungsstór appelsína |
|
Stillið ofninn á 180°C. Setjið smjörið, mjólkina, eggin, börkinn, safann, sykurinn og hveitið í hrærivélina. Hrærið í þessu á litlum hraða þar til allt hefur blandast saman. Hækkið í hrærivélinni og hrærið smástund enn (u.þ.b. 3 mínútur) eða þar til deigið er orðið ljósara á litinn og mýkra. Setjið deigið í 20 cm kringlótt kökuform og bakið í 45 mínútur í miðjum ofni. þegar kakan er bökuð er best að láta hana kólna í 5 mínútur áður en haldið er áfram. Stráið megninu af flórsykrinum gegnum sigti yfir kökuna. Hellið rólega aukasafanum yfir kökuna og sigtið síðan afganginn af flórsykrinum yfir. Skreytið með hálfum appelsínusneiðum. |
| Þýtt úr "Get Real, Make a Meal Kid's Cooking Step-by-Step" úr seríunni Australian Women's Weekly Cookbooks |