Bananakaka (f. 6)

Í þessa uppskrift er best að nota ofþroskaða banana því þannig fæst besta bragðið.

Kakan: Rjómaostakrem:
4 bananar, miðlungsstórir 1 1/2 b flórsykur
125 g mjúkt smjör 125 gr rjómaostur
1 tsk vanilludropar eða vanilla 'essence' 30 gr mjúkt smjör
1/2 b sykur 1 tsk sítrónubörkur, fínt rifinn
2 egg  
1 msk mjólk  
1 1/2 b hveiti  
3 tsk lyftiduft  
1 tsk matarsódi  
1/2 tsk kanilduft (malaður kanill)

 

Hitið ofninn í 180°C.

Smyrjið kringlótt kökuform sem er 20 cm í þvermál. Ef þú notar ekki lausbotna form, settu þá bökunarpappír í botninn á forminu.

Stappaðu bananana vel og settu í skál. Bættu við smjörinu, vanilludropunum, sykrinum, eggjunum og mjólkinni. Sigtaðu saman við hveitið, lyftiduftið og sódann. Þeytið með handþeytara á miðlungshraða í 4 mín. eða þartil deigið er orðið ljóst að lit.

Bakið í miðjum ofni í 1 klst. Kremið: sigtaðu flórsykurinn í skál, saxaðu rjómaostinn í smábita og bættu saman við sykurinn. Settu síðan smjörið og börkinn saman við og þeyttu með þeytaranum þar til kremið er orðið slétt og mjúkt. Smyrðu nú kreminu á kökuna, stráðu yfir smávegis af kanil og þá er hún tilbúin.




Krummu staður  |   Yfirlitið