| Körfubrauð |
Súrdeig: 25 g ger 1,5 dl volgt vatn 1,5 dl rúgmjöl (75 g) 1 tsk malað kúmen (má sleppa) |
|
Best er að búa súrdeigið til kvöldi áður en baka skal brauðið og láta það standa í skálinni undir álpappír þar til morguninn eftir. |
|
Blandist í súrdeigið: 3,5 dl volgt vatn 1 msk salt 1 msk olía 200 g rúgmjöl 350 g hveiti |
|
Hræra vatnið, saltið og olíuna útí súrdeigið. Síðan mjölið. Deigið á að vera rakt og mjúkt. Láta lyfta sér í 30 mín. Búa síðan til stóra bollu, láta hana í körfu (ca. 18 cm í þvermál) og þar skal deigið lyfta sér í 40 mín. Vippa brauðinu úr körfunni og á bökunarplötu. Pensla með vatni ef maður vill harða skorpu. Bakist neðst í ofni við 200°C í 40 mín. |