Alíslenskar pönnukökur II

Gerir um það bil 21-22 pönnukökur.

250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 dl sykur
1-2 egg
3 msk matarolía eða 50 g smjörlíki
6-7 dl mjólk
1/4 tsk vanilludropar

  1. Hveiti og lyftidufti er sáldrað saman í skál. Sykrinum bætt í.
  2. Helmingnum af mjólkinni er hrært út í. Hrært vel í kekkjalausan jafning.
  3. Eggið er látið í, síðan það sem eftir er af mjólkinni ásamt bökunardropunum.
  4. Olían er látin út í. Ef notað er smjörlíki, þá er það brætt og kælt aðeins áður en það er látið út í.
Úr Unga fólkið og eldhússtörfin, 1975





Krummu staður  |   Yfirlitið