Chop Suey kjúklingur (f. 2-3)
|
2 msk ljós sojasósa
1 tsk púðursykur
salt eftir smekk
450 g beinlaust kjúklingakjöt, skorið í smásteik
2 msk olía
1 laukur, skorinn í bita
225 g baunaspírur
2 tsk sesamolía
1 msk kornsterkja
225 g kjúklingasoð eða 3 dl vatn og 1,5 teningur kjúklingakraft
|
- Blandið saman sojasósunni, sykrinum og saltinu og veltið kjúklingakjötinu upp úr blöndunni. Látið standa í 5 mínútur. Takið kjötið úr blöndunni og geymið hana.
- Hitið wok-pönnu og hellið olíu á hana. Steikið kjötið í 2-3 mínútur og takið það svo af pönnunni.
- Steikið laukinn í 2-3 mínútur og bætið síðan baunaspírunum á pönnuna. Steikið í 4-5 mínútur í viðbót.
- Stejið kjötið aftur á pönnuna og bætið sesamolíunni út í.
- Leysið kornsterkjuna upp í soðinu og hellið yfir kjötið á pönnunni. Sjóðið í 2-3 mínútur og hrærið í þangað til sósan þykknar.
|
Berist fram með brauði/tortillas, og ekki gleyma hrísgrjónum og grænu salati.
Ábending: Kaupið baunaspírurnar sama dag og á að nota þær þar sem þær geymast mjög illa.
|
| |
| Úr matreiðsluhefti Australian Women's Weekly
|