Dásamleg döðlukaka

500 gr döðlur
2 msk Smjörvi
100 gr valhnetur, malaðar
100 gr möndlur, malaðar
1 tsk lyftiduft
1 banani, stappaður
1 tsk vanilludropar
1 tsk kanilduft
salt af hnífsoddi
1 1/2 dl heilhveiti eða byggmjöl

Döðlurnar eru látnar vera í bleyti í vatni í ca. 1 klst. (láta vatnið rétt fljóta yfir). Síðan eru þær skornar í litla bita og settar í hrærivél ásamt smjörva. Restinni af uppskrftinni bætt útí og öllu hrært létt saman.

Sett í smurt bökuform og bakað við ca. 180°C í ca. 20-25 mín.
 
Frá Grænum Kosti




Krummu staður  |   Uppskriftir