Fiskur m/karrý og sveppum (f. 4)

0 - 400 g fiskur

2 dl hrísgrjón
2 dl súrmjólk/AB mjólk 2 tsk salt
4 msk majones 100 g sveppir
2 tsk karrý rifinn ostur


Magn fisks skiptir ekki máli til að fá rétt bragð.

Sjóðið hrísgrjónin skv. leiðbeiningum á pakka. Hrærið saman súrmjólk, majones, karrí og helming af salti. Ath. best er að hræra majonesið aðeins áður en súrmjólk og krydd er sett saman við; það dregur úr kekkjamyndun.

Setjið soðin hrísgrjónin í smurt ofnfast mót. Skerið fiskinn í bita og raðið honum yfir hrísgrjónin. Stráið afgangi af salti yfir fiskinn. Sneiðið sveppi og dreifið yfir fiskinn. Hellið karrísósunni yfir allt.

Bakið í miðjum ofni við 200° C í 30-40 mín. Stráið þá ostinum yfir og bakið áfram þar til osturinn er mátulega bráðinn.

Þarf ekki neitt meðlæti, en nýtt brauð og/eða salat er ágætt með.





Krummu staður  |   Yfirlitið