Grænmetissúpa
|
1/2 sæt kartafla |
1/2 blómkálshaus |
| 4 sellerístilkar |
2 gulrætur |
| 1/2 rófa |
2 hvítlauksrif |
| 1 tsk karrý |
1 ds kókosmjólk |
| vatn |
1 gerlaus grænmetisteningur |
| smá salt eftir smekk eða tamari-sojasósa |
| 1 tsk e-r góð kryddblanda frá Pottagöldrum |
ferskur kóríander / graslaukur / annað grænt krydd
|
- Grænmetið skorið í passlega bita og sett í pott
- Kryddi og kókosmjólk bætt útí
- Vatni er bætt útí svo að rétt fljóti yfir
- Látið sjóða í ca. 12 mín
- Setjið súpuna í blandara og blandið þar til silkimjúkt
- Klippið grænt krydd yfir áður en borið er fram.
- Einnig er hægt að sleppa því að setja súpuna í blandara og hafa hana grófa
|