Hamborgarabraud
|
ca 2 tsk þurrger (6 gr)
275 ml volgt vatn
1/2 msk hunang
ca 1/3 dl olía
|
25 gr hveitiklíð
75 gr gróft spelt
25 gr rúgmjöl / gróft spelt / byggmjöl
300 gr fínt spelt
|
|
|
- Setjið gerið í skál og hellið volgu vatni yfir (37°C fyrir pressuger en 45°C fyrir þurrger). Bætið hunangi og olíu saman við og hrærið þar til gerið er uppleyst.
- Blandið saman salti og hveitiklíð og bætið út í gerblönduna.
- Blandið saman restinni og hrærið í skömmtum út í gerblönduna og hnoðið vel.
- Breiðið klút yfir deigið og látið hefast á hlýjum stað í 45 mín.(ég set það í ofninn á rétt undir 50°C)
- Hnoðið upp deigið og rúllið í lengju. Skiptið í 6 stykki. Mótið hálf flatar bollur og raðið þeim á plötu klædda með bökunarpappír.
- Stingið lauslega í bollurnar með gaffli og látið hefast aftur á hlýjum stað í 20 mín.
- Sigtið þunnt lag af fínu spelti ofan á og bakið á 180-200°C í 15 mín.
|
| |
| www.eldhus.is - Sendandi: Þorgeir L. Árnason
|