Hnetu- og eplakaka

Deig:
150 g smjör(líki)
200 g hveiti
1 msk sykur
2 msk vatn

Skerið smjörið í teninga. Setjið smjö, hveiti og sykur í kvörn. Blandið þessu vel saman (í 15 sek.). Bætið vatninu í blandið. Deiginu er pakkað í plastfilmu og það sett inn í ísskáp og geymt þar í 30 mín.

Fletjið deigið út og setjið það í form (24 cm) og pikkið það með gaffli og bakið í 200 gráðu heitum ofni í 10 mín.

Fylling
600 g (5-6) epli
150 g hnetur (heslihnetur, valhnetur og pistasiur)
100 g smjör
1 dl púðursykur
2 msk mjólk
1 msk hveitir

Grófhakkið hneturnar, flysjið eplin og skerið í sneiðar. Bræðið smjörið og blandið vel saman við það hnetum, sykri hveiti og mjólk. Hrærið þessu öllu vel saman. Setjið hnetufyllinguna í formið og stingið eplasneiðunum ofan í hnetublönduna. Kakan er nú bökuð í 200 grðu heitum ofni í 25 til 30 mín.

Með þessari ljúffengu hnetu- og eplaköku er gott að hafa vanilluís




Krummu stašur  |   Yfirlitið