Kleinuhringir 1

1 bolli hveiti
1/2 bolli sykur
1 msk lyftiduft
1 egg
1/2 bolli mjólk
1/2 tsk vanilla
4 msk matarolía

Hræra þurrefnin saman. Bæta við eggi, vanillu og mjólk og hræra með hrærivél í 1 mín. (má líka hræra rösklega í höndum). Bæta við olíu og hræra í aðra mínútu. Baka í bakka, setja deig í botninn á hólfunum. Sennilega 5 mín. í ofni.

www.hungrybrowser.com/phaedrus/m031102.htm#2


Kleinuhringir 2 (24 stk)

1 bolli perlusykur
3 1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk kanill
1/2 tsk negull
1/2 tsk salt
4 bolli hveiti
2 egg
1 bolli mjólk
3 msk brætt smjör

Sigta saman sykur, lyftiduft, kanil, negul, salt og hveiti. Slá saman eggin og blanda þeim svo saman við. Bæta mjólkinni og smjörinu saman við. Fletja deigið út ca. 1,2 cam þykkt og skera út kleinuhringi. Steikja nokkra í einu í 190°C heitri feiti þar til ljósbrúnir. Látið þorna á eldhúspappír. Skreyta með flórsykri, eða einhverju sem manni langar í.





Krummu staður  |   Uppskriftir