|
Lambakjöt í álpakka (f. 1) | |
álþynnur 39x30 sm |
svartur pipar |
| ¼ tsk olía | 1 tsk söxuð steinselja |
| 150 g lambakjöt í litlum bitum | óreganó á hnífsoddi |
| ¼ tsk salt | ½ hvítlauksgeiri, pressaður |
| 1 tsk sítrónusafi | 50 g rifin Dala-Yrja |
Hitið ofninn í 175° C Setjið kjötið og olíuna í miðja álþynnuna. Blandið saman salti, sítrónusafa, steinselju, pipar, óreganó og hvítlauk. Dreifið yfir kjötið. Rífið ostinn niður á rifjárni (eða rífið í sundur með puttunum) og dreifið yfir kjötið. Lokið pakkanum vel. Setjið vatn í botninn á eldföstu móti og setjið pakkann ofan í. Bakið í 40 mín. Borðist með hrísgrjónum og grænmeti. Tekið úr uppskriftabæklingi Osta og smjörsölunnar. | |