Pastaréttur með kjúklingi og grænmeti


150 g pasta, soðið 50 g sveppir
100-150 g kjúklingur 50 g spergilkál / blómkál, soðið
½ laukur, saxaður soðkraftur – vatn
olía – smjör rifinn ostur
½ paprika, söxuð 1 msk tómatmauk (purée)
1 hvítlauksgeiri, pressaður 1 - 1½ msk Kebab kjúklingakrydd
 
Sveppir og kjúklingur steikt í olíu og kryddað með Kebab kjúklingakryddi frá Pottagöldrum. Laukur, paprika og hvítlaukur látið krauma með. Smávegis af vatni hellt yfir og klípur af kjúklingakrafti bætt út í ásamt tómatmauki. Þá er soðnu pastanu og spergilkálinu bætt út í og rétturinn látinn krauma smástund. Rifinn ostur settur yfir.

Úr Galdrabók Pottagaldra, 14. tbl. 2003. Sigfríð Þórisdóttir.
 
Krummu staður  |   Yfirlitið