|
Rjómakartöflur |
1,5 kg flysjaðar kartöflur í þunnum skífum 1 miðlungs stór courgette (zucchini) í þunnum skífum, ca. 300 g 4 hakkaðir sjalott laukar 2 marin hvítlauksrif salt nýmalaður pipar 1 msk timjan, rósmarín og oregano 3/4 l rjómi (cirka), tilvalið að nota venjulegan og kaffirjóma til helminga 35 g rifinn parmesanost Blandið saman öllum kryddum og grænmeti í steikarskúffu. Hellið rjómanum yfir og bakið við 200°C í hálftíma. Stráið þá ostinum yfir og bakið áfram þar til osturinn er vel bakaður. |