| Seytt rúgbrauð I | |
1 kg rúgmjöl 2 msk þurrger 2 tsk salt 8 dl fingurvolgt vatn 2 msk púðursykur (þarf ekki) | |
|
Rúgmjöl, ger, salt og sykur sett saman í skál. Setjið vatnið í og hrærið eða hnoðið. Smyrjið formið og fyllið 4/5 af deigi. Þrýsta því vel niður og leggja álpappír ofan á*. Bakað við 100-105°C (95-100°C í blástursofni) í 14 tíma. *Það er mjög þægilegt að nota 1 lítra mjólkurfernu í staðinn fyrir hefðbundið form. Þá er fernan fyllt að 4/5 hluta og henni svo lokað með því að brjóta opið saman. | |