|
Tortilla með kartöflum og zucchini |
1 lítill laukur, skorinn í fjórðuna og sneiddur 1 stórt hvítlauksrif 225 g kartöflur (hráar), flysjaðar og skornar í litla teninga salt og pipar 200 g zucchini, skorið langsum í tvennt og sneidd þykkt 4 egg, helst stór 2 msk mjólk 2 kúfaðar msk gróft söxuð steinselja Hitið olíuna á pönnu. Steikið lauk, hvítlauk og kartöflur við vægan hita í 20 mín. Bragðbætið með salti og pipar. Bætið zucchini við, hækkið hitann aðeins og steikið áfram í 10 mín. Hitið grillið í ofninu. Hrærið saman eggin og mjólkina. Hellið blöndunni út á pönnuna og látið malla í ca. 5 mín eða þar til eggin eru hálf-bökuð. Setjið þá pönnuna í ofninn í nokkrar mínútur eða þar til eggin eru fullbökuð. Látið standa í 5 mín. áður en borið fram. Steinseljan er höfð sem meðlæti eða skraut. Má líka saxa hluta af henni smátt og setja útí eggin. |