Hnetusmjörssósa með kjúklingi á pinna

Þessi er óleyfilega góð, best með kjúklingi og hrísgrjónum. Nokkurs konar Satay sósa, eins og þessar sem hægt er að kaupa úti í búð.

Best með úrbeinuðum kjúklingalærum þræddum uppá grillpinna (leggið pinnana í bleyti í 30 mín fyrir notkun) og steikt á þurri grillpönnu eða grillað í ofni. Skerið kjúklingalærin í 3 cm strimla, þræðið strimlana uppá grillpinna og steikið í 5 mín. á annarri hliðinni og síðan 3 mín. á hinni hliðinni, eða þar til kjötið er steikt í gegn. Önnur möguleg aðferð er að marinera kjúklinginn áður en hann er steiktur; marinering: kókosmjólk og túrmerik.

Sósan
1 lítill laukur
1 hvítlauksbátur
2 tsk mulið kúmen/kúmenduft
3/4 bolli kjúklingakraftur
1/3 bolli 'crunchy' hnetusmjör (ég hef oft notað 'creamy' hnetusmjör og það er alveg eins gott)
1/4 bolli vatn
1 msk plómusósa
2 tsk sæt chilisósa (í flösku)
2 tsk sojasósa

Saxið laukinn smátt og merjið hvítlaukinn. Steikið á meðalheitri pönnu í 1 msk oliu báða laukana og kúmenið. Látið krauma þar til laukurinn er orðinn mjúkur og glær. Bætið þá við kjúklingakraftinum, hnetusmjörinu, vatninu og öllum sósunum. Hrærið allt saman og látið malla loklaust í 2 mín., þar til sósan þykknar lítillega. Þá er hún tilbúin.




Krummu staður  |   Yfirlitið