|
Indverskur fiskréttur (f. 6) | |
600-800 g fiskflök |
½ tsk engifer |
| 2 stórir laukar | 1-2 msk karrý |
| 2 græn / gul epli | 75-100 g smjörlíki |
| 2 bananar | 1 tsk salt |
| 2 rauðar paprikur |
|
Stillið ofninn á 200° C Hreinsið fiskinn, látið hann í aldfast mót og látið mótið í ofninn. Hreinsið ávexti og lauk, skerið lauk og papriku í ræmur, banana í bita og epli í þunna báta. Hitið 30 g smjörlíki á pönnu, steikið laukinn og hluta af kryddi, þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Setjið laukinn svo ofan á fiskinn og bakið áfram. Endurtakið þetta með það sem eftir er af grænmeti, ávöxtum og kryddi. Borið fram með hrísgrjónum, helst hýðishrísgrjónum. | |