Karrýsósa frá grunni

1 laukur
1 epli
karrý
100 g hveiti
75 g smjörl.
1,5 l soð
salt, pipar, kjötkraftur

Laukur saxaður, epli skorið smátt. Sett í pott og látið krauma í smjörl. Kryddað með karrýi, ca. 3 msk. Þá er hveiti látið út í og hrært saman við, soðinu bætt útí og pískað vel. Sósan er bragðbætt með salti, pipari og kjötkrafti.




Krummu staður  |   Yfirlitið