| Kínversk hrísgrjón | |
olía |
laukur / rauðlaukur |
| kínakál | rækjur |
| paprika (e-n lit) | sveppir |
| 1-2 egg | salt, sykur |
| svartur pipar | sojasósa |
Best er að byrja á að sjóða hrísgrjónin og hafa þau tilbúin. Magn fer eftir fyrir hversu marga er eldað (ca. 1 dl per mann). Skerið allt grænmetið í ekki of smáa bita. Hitið olíuna, helst á WOK pönnu. Steikið eggin og laukinn lítillega, bætið síðan öllu hinu grænmetinu útí og steikið við háan hita í mjög stutta stund. Þá er rækjum bætt við, steikt örlitla stund áður en hrísgrjónin er sett útí. Öllu blandað vel (þegar hér er komið má lækka vel undir, jafnvel slökkva alveg), kryddað með salti (að vild), sykri, sv. pipar og loks sojasósu. Sé eldað fyrir 2 er nóg að hafa 1 egg og 1 tsk sykur. Í stað hrísgrjóna má vel nota kínverskar núðlur, eins og fást í Hagkaup, Nýkaup og öðrum stöðum. Þá eru núðlurnar undirbúnar skv. leiðbeiningum á pakkanum og síðan farið með þær eins og hrísgjrónin. | |