Lasagna

Kjötsósa:

Jafningur:
250-350 g hakk 50 g smjörl.
1 hvítlauksrif 50 g hveiti
1 laukur mjólk
30-40 g smjörl. til steikingar (má sleppa)
250 g afhýddir tómatar (ca. ½ dós)
salt, pipar, oregano
1 dl soð (vatn+súputen.)
tómatssósa eftir smekk

Steikið laukinn og hakkið lítillega. Bætið útí öllu kryddi. Setjið þá tómata og soð saman við, blandið vel. Látið malla í 5-10 mín. Bragðbætið að vild. Búið nú til jafninginn.

Takið fram eldfast mót og hellið jafningnum í botninn. Setjið lasagna blöð ofan á, hellið yfir kjötsósu og svo aftur jafningi. Endurtakið þetta þar til mótið er fullt (eða allt er búið), hafið jafninginn efst. Stráið rifnum osti yfir og bakið við 175° - 200° C í 25-30 mín.

Borðist með brauði. Aðrir möguleikar um meðlæti: hrásalat, kotasæla eða sýrður rjómi.




Krummu staður  |   Yfirlitið