|
Ýsa m/sítrónupipar og karrýhrísgrjónum | |
Karríhrísgrjón: |
1 tsk karrý |
| grænmetiskraft (1 tening) | 4 dl hrísgrjón |
| 1 msk smjörl. | 6 dl vatn |
Hitið karrýið og grænmetiskraftinn í smjörlíkinu í potti. Bætið hrísgrjónunum útí og blandið þeim vel saman við kryddið. Hellið vatninu í pottinn og látið sjóða þar til vatnið er allt gufað upp. Meðan hrísgrjónin sjóða er fiskurinn tekinn til. Ýsumagn ræðst af fjölda matargesta. Setjið fiskinn í eldfast mót og stráið yfir salti og sítrónupipar að vild. Bakið í ofni við 200° C í ca. 10 mín, stráið þá osti yfir og bakið þar til ostur er bráðinn. Berið fram með hrísgrjónunum og kannski brauði og salati. | |